Galaxy Z Fold8 Ultra
Besti farsímadíllinn!
Forsölutilboð gildir 22. júlí–16. ágúst 2026. Fáðu 512 GB á verði 256 GB og 1TB á verði 512GB.
Kynningarverð 512GB: 379.990 kr., verð eftir kynningu: 419.990 kr.
Kynningarverð 1TB: 419.990 kr., verð eftir kynningu: 489.990 kr.
Galaxy Buds4 Pro og 30 daga áskrift að Sagnalandi fylgja með. Sækja þarf um kaupaukann á https://samsungmobile.is/kaupaukar/.
Fyrstu tæki eru væntanleg í byrjun ágúst og afhent í röð pantana.
Galaxy Z Fold8 Ultra opnast upp í stórt og sveigjanlegt vinnusvæði sem gerir þér auðvelt að sinna mörgum verkefnum í einu. Innri skjárinn hentar vel fyrir tölvupóst, myndvinnslu, myndsímtöl og afþreyingu, en þegar símanum er lokað færðu að upplifa lipra og hefðbundna snjallsímaupplifun.
Innbyggðar Galaxy AI-aðgerðir aðstoða við verkefni á borð við myndvinnslu, glósur, leit og þýðingar, á meðan öflugur örgjörvi sér um að allt gangi hratt og hnökralaust fyrir sig. Með Samsung DeX geturðu jafnframt tengt símann við stærri skjá og unnið á honum á svipaðan hátt og tölvu. Myndavélakerfið er hannað fyrir skarpar myndir og stöðug myndbönd, jafnvel þegar þú ert á hreyfingu. Flex Mode gerir þér kleift að stilla símanum hálfopnum fyrir sjálfsmyndir, myndsímtöl og upptökur án þess að halda á honum.
- 8,0" Dynamic AMOLED 2X innri skjár með 120 Hz endurnýjunartíðni
- 6,5" Dynamic AMOLED 2X ytri skjár
- 200 MP aðalmyndavél, 50 MP gleiðlinsa og 10 MP aðdráttarlinsa
- Snapdragon 8 Elite Gen 5 for Galaxy örgjörvi
- 5.000 mAh rafhlaða með 45 W hraðhleðslu
- Allt að 16 GB vinnsluminni og 1 TB geymsla
- Galaxy AI, Samsung DeX, Flex Mode og IP48 vörn gegn ryki og vætu
Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!
Lagerstaða
Litir
